Mikael Máni gefur út fimmtu breiðskífu sína Half Sun 5.júni.
Platan Half Sun fjallar um innri togstreitu – þegar ólíkir partar sjálfsins takast á og vilja ólíka hluti. Þar mætast meðal annars óskhyggja og raunsæi, reiði og stjórn, eða nostalgía og þörfin fyrir að halda áfram. Lögin endurspegla þetta óvissuástand með því að vinna með endurtekin tónlistarleg mótíf sem eru skoðuð frá ólíkum sjónarhornum, þar sem andstæður túlkanir kallast á innan sömu tónsmíðar.
Mikael Máni er gítarleikari og tónskáld með persónulegan og kvikmyndalegan hljóðheim þar sem áhrif frá djass, rokki og impressjónisma mætast. Hann hefur á undanförnum árum skapað sér sérstöðu á alþjóðavettvangi, meðal annars með plötunni Guitar Poetry (2024), sem kom út hjá þýska útgáfufyrirtækinu ACT og hlaut 4,5 stjörnu dóm í DownBeat.
Fyrri verk hans hafa einnig vakið athygli, þar á meðal frumraunin Bobby, sem fékk spilun á BBC Radio, og platan Innermost, sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem djassplata ársins. Mikael er hluti af nýrri bylgju íslenskra tónlistarmanna sem njóta alþjóðlegar viðurkenningar, og verk hans endurspegla þann nýskapandi anda sem einkennir íslenska tónlistarsenu í dag.
“…an impressionistic gem. ★★★★½” – DownBeat
“A storyteller of the guitar who provides templates for the cinema in the listener’s head ★★★★” – Concerto
“A lyrical and cinematic voice in modern jazz.” – All About Jazz
“He aimed to, and succeeded in, making the sort of music that leaves an imprint on the mind ★★★★” – BBC Music Magazine



Reviews
There are no reviews yet.