Loading Events

« All Events

Hátíð Smekkleysu SM í Austurbæ

December 12 @ 18:00 - 23:58

PURRKUR PILLNIKK ÚTGÁFUTÓNLEIKAR & SMEKKLEYSA 40 ÁRA

Það er ekki á hverjum degi sem Purrkur Pillnikk sendir frá sér nýja plötu. Og það er ekki á hverju ári sem Smekkleysa verður fertug!

Þess vegna ætlum við að slá tvær flugur í einu höggi og blása til stórhátíðar í Austurbæjarbíói.

Purrkur Pillnikk stíga á svið í Austurbæjarbíói og fagna útgáfu nýrrar plötu, en sveitin hefur allt frá upphafi verið órjúfanlegur hluti þeirrar sögu sem Smekkleysa hefur skrifað í íslensku tónlistarlífi.

En þetta er miklu meira en einir tónleikar.

Í tilefni af 40 ára afmæli Smekkleysu höfum við kallað saman stóran og fjölbreyttan hóp tónlistarfólks, allt frá gömlum ólátabelgjum til nýrra og spennandi radda íslenskrar tónlistar.

Purrkur Pillnikk • Virgin Orchestra • Kaktus Einarsson • Supersport • sideproject • ex.girls • Gross • Ásta Fanney • Sucks to be you nigel • Stirnir • Gyða Valtýsdóttir • GRÓA • Gísli Pálmi • Curver • knackared • Lára

UM VIÐBURÐINN

Nú stöppum við í okkur stálinu fyrir komandi átök, stillum strengi svo um munar og búum okkur undir hátíð ó-hljóðs ó´friðar.

Í tilefni af 40 árum af Smekkleysu höfum við þeytt í lúðra vora, kallað saman herskara hljómsveita og tónlistarfólks og blásið til allsherjar tónlistarveislu í Austurbæjarbíói laugardaginn 12. desember.

Þar munu ólíkir hljóðheimar takast á, gamlir kunningjar stíga fram og nýir ófriðarseggir láta til sín taka. Enginn veit með vissu hvað úr verður, en eitt er víst: Það verður ekki hljótt.

Að fjörutíu árum liðnum er lítið annað eftir en að telja niður.

Miðasala er hafin

Venue

  • Austurbær
  • Snorrabraut 37
    Reykjavik, 105 Iceland
    + Google Map