Allt er þegar þrennt er: Almyrkvi á sólu, sýning Bjarkar í Listasafni Íslands og 40 ára afmæli Smekkleysu !!
Í tilefni þessa er blásið til hátíðar á Víðistaðatúni, Hafnarfirði, miðvikudaginn 12.ágúst 2026.
Mánakvöld Bjarkar og Smekkleysu hafa löngum skapað sér sess í íslensku menningarlífi, hvar Björk hefur um árabil boðið þekktu tónlistarfólki að utan að leika fyrir dansi undir fullu tungli í blandi við íslensku grasrótina. Að þessum sinni verður dansað undir almyrkva á sólu.
Fram koma:
- Björk (dj)
- Arca (dj)
- Ronja
- Sideproject
+++ fleiri vinir tilkynntir er nær dregur !!
Viðburðurinn fer fram samhliða sýningu Bjarkar í Listasafni Íslands sem stendur yfir frá 30.maí – 20.september 2026. Í safninu veita þrjár innsetningar gestum einstakt tækifæri til að upplifa alltumlykjandi verk sem búa yfir kynngimagnaðri hljóðrænni, sjónrænni og tilfinningalegri dýpt. Tvö þeirra eru tregaljóð, samin og útsett af Björk í minningu móður hennar, og hið þriðja er nýtt verk af væntanlegri plötu Bjarkar. Ásamt sýningu Bjarkar verður í safninu sýning James Merry, Ummyndlingar, en tvíeikið hefur unnið náið saman í fjölda ára.
Frá Víðistaðatúni í Hafnarfirði munu gestir upplifa almyrkva á sólu í 1 mínútu og 4 sekúndur, en áhrifa sólmyrkvans mun gæta í tvær klukkustundir. Nánar á https://solmyrkvi2026.is/
Innifalið í miðaverði er aðgangur að sýningum Bjarkar og James í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg og sérhönnuð sólmyrkvagleraugu í anda viðburðarins.
Þá bjóðast ennfremur til sölu í takmörkuðu upplagi pakkar með vel völdum árituðum eintökum af nýjum útgáfum, afmælisútgáfum og endur-útgáfum Smekkleysu. Sjá nánari upplýsingar hér að ofan og við miðakaup.
Miðasala hefst föstudaginn 10.apríl kl. 10 á tix.is
