-
Fimmtudaginn 30. júlí kl. 20:00 stígur tékkneska kultsveitin WWW Neurobeat á svið í Smekkleysu. WWW Neurobeat hefur í rúma þrjá áratugi verið meðal frumlegustu og áhrifamestu hljómsveita tékknesku jaðartónlistarsenunnar. Með einstakri blöndu af industrial, hip hopi, raftónlist, myrkum hljóðheimum og ljóðrænum textum hafa þau skapað sér sérstöðu sem hefur aflað þeim dyggs aðdáendahóps víða um [...]
