Hinn ótrúlegi grínisti, tónlistarmaður, leikari og rithöfundur Reggie Watts sækir Ísland heim á ný! Hann kom síðast til landsins 2010 en mikið hefur gerst síðan og er í dag er hann ein skærasta grínstjarna heims. Reggie Watts blandar saman tónlist og uppistandi á einstakan hátt.
Reggie kemur fram í Smekkleysu Plötubúð mánudaginn 29. apríl klukkan 20:00
Reggie Watts er hvað frægastur fyrir að vera hljómsveitarstjórinn í The Late Late Show with James Corden. Hann var einnig DJinn á Emmy-hátíðinni 2020.
Netflix-þátturinn hans, Spatial fékk rífandi góða dóma og New York times kallaði hann „rússíbana af vitleysu og veruleikaflótta” og sögðu Reggie vera „áhrifamesta absúrdistann í grínheiminum.”
Reggie Watts er einstakur grínisti, þar sem allt grín og tónlist er spunnið á staðnum. Búið ykkur undir algjörlega einstaka og ógleymanlega kvöldstund.
Ó_keypis aðgangur.