Söngkona, gítarleikari og aðal lagahöfundur þjóðlagarokksveitarinnar Big Thief, Adrianne Lenker, hefur sent frá sér nýja smáskífu í dag. Lagið er af hennar þriðju breiðskífu sem ber einfaldlega heitið songs. “dragon eyes” er önnur smáskífan af plötunni sem kemur út á vegum 4AD.
Lagið kemur einnig út á helstu tónlistar- og streymisveitum.
Big Thief áttu að koma til landsins í sumar en hættu við tónleikaferð sína eins og flest annað tónlistarfólk vegna Covid 19. Big Thief hafa gefið út samtals fjórar breiðskífur á vegum 4AD og Saddle Creek.