Smekkleysa SM 40 ára – World Domination or Death
PURRKUR PILLNIKK ÚTGÁFUTÓNLEIKAR & SMEKKLEYSA 40 ÁRA
Það er ekki á hverjum degi sem Purrkur Pillnikk sendir frá sér nýja plötu. Og það er ekki á hverju ári sem Smekkleysa SM verður fertug!
Þess vegna ætlum við að slá tvær flugur í einu höggi og blása til stórhátíðar 12 desember í Austurbæj.
Purrkur Pillnikk stíga á svið í Austurbæjarbíói og fagna útgáfu nýrrar plötu, en sveitin hefur allt frá upphafi verið órjúfanlegur hluti þeirrar sögu sem Smekkleysa hefur skrifað í íslensku tónlistarlífi.
En þetta er miklu meira en einir tónleikar.
Í tilefni af 40 ára afmæli Smekkleysu höfum við kallað saman stóran og fjölbreyttan hóp tónlistarfólks, allt frá gömlum ólátabelgjum til nýrra og spennandi radda íslenskrar tónlistar.
Purrkur Pillnikk • Virgin Orchestra • Kaktus Einarsson • Supersport • sideproject • ex.girls • Gross • Ásta Fanney • Sucks to be you nigel • Stirnir • Gyða Valtýsdóttir • GRÓA • Gísli Pálmi • Curver • knackared • Lára
UM VIÐBURÐINN
Nú stöppum við í okkur stálinu fyrir komandi átök, stillum strengi svo um munar og búum okkur undir hátíð ó-hljóðs ó´friðar.
Í tilefni af 40 árum af Smekkleysu höfum við þeytt í lúðra vora, kallað saman herskara hljómsveita og tónlistarfólks og blásið til allsherjar tónlistarveislu í Austurbæjarbíói laugardaginn 12. desember.
Þar munu ólíkir hljóðheimar takast á, gamlir kunningjar stíga fram og nýir ófriðarseggir láta til sín taka. Enginn veit með vissu hvað úr verður, en eitt er víst: Það verður ekki hljótt.
Að fjörutíu árum liðnum er lítið annað eftir en að telja niður.

