Er einhver ástæða til að staldra við áður en allt frýs yfir? Auðvitað er því auðsvarað að það er enginn ástæða til þess. Við erum núna búin að gefa út tvö lög af &aftur, gefa út nýjan stuttermabol þann fyrsta í sögu purrks pillnikk.

Frýs er þriðji singullinn frá Purrki Pillnikk í aðdraganda útkomu 14 laga stórplötunnar &aftur.

Frýs er hávær hamagangur með ískrandi væli sköfunnar í freðnum heilanum.

Frýs fer inn að beini og út hinum megin. Verum héluð; hlustum á frýs.

Til að létta okkur öllum störfin í dagsins önn og skrapi og skafi er hér í fyrstu athugasemd vísir að flestum streymisveitum til að hlusta á lagið!

hér er lagið frýs

Review