Record Store Day verður haldinn í síðasta sinn laugardaginn 24. október. Þetta er síðasta droppið af þremur í ár og að sjálfsögðu er Smekkleysa Plötubúð með í fagnaðarlátunum. Sjaldgæfar RSD2020 útgáfur og annað góðgæti á tilboði í Smekkleysu Plötubúð. Jafnvel eitthvað óvænt, hver veit?

Þar sem sóttvarnalög eru í hávegum höfð í Smekkleysu Plötubúð þá viljum við minna fólk á að virða fjarlægðamörk og vera í mýktinni. Af sprittinu eigum við nóg af og mælum við með grímum.

Review