Frá árinu 1981 hafa Einar Örn Benediktsson og Bragi Ólafsson unnið saman sem tónlistarmenn, textahöfundar og útgefendur. Þeir stofnuðu saman hljómsveitina Purrk Pillnikk, ásamt Friðriki Erlingssyni og Ásgeiri Bragasyni, og voru báðir meðal stofnmeðlima útgáfufélagsins Smekkleysu SM árið 1986. Samhliða því störfuðu þeir saman í hljómsveitinni Sykurmolarnir til 1992. Smekkleysa SM, sem vantar aðeins þrjú ár í að verða fertug, er enn í fullu fjöri sem útgáfa, auk Smekkleysu-plötubúðar og útgáfumiðstöðvar við Hjartatorg og Hverfisgötu í miðbæ Reykjavíkur. Allt frá upphafi hefur Smekkleysa SM gefið út bækur, jafnt ljóð sem skáldsögur, en einnig bækur sem tengjast menningararfi félagsins.

Út úr mátunarklefanum er önnur bók Einar og Braga sem þeir vinna saman. Einar hefur einnig teiknað myndir á kápur annarra bóka Braga, bæði ljóðabóka og skáldsagna. Fyrri bók þeirra félaga kallast Mátunarklefinn og aðrar myndir, en í því smáriti eru prósar og teikningar, hvort um sig sjálfstæð verk. Um svipað leyti gaf Bragi út hjá Smekkleysu smáritið Fjórar línur og titill, safn fjögurra lína ljóða með titli. Það má því segja að Út úr mátunarklefanum – fleiri fjórar línur ogþrefalt færri fjórlínungar sé sjálfstætt framhald þessara tveggja smárita, þótt í þetta skiptið sé formatið mun stærra, eins konar tímaritabrot. Verk höfundanna í þessu bókverki eru sem áður sjálfstæð verk, en tengjast þó á sterkan hátt í anda, enda hafa Einar og Bragi, eins og áður segir, þekkst mjög lengi og átt í mjög nánu samstarfi sem listamenn.

Með Út úr mátunarklefanum má segja að höfundarnir séu endanlega komnir út úr klefanum, eftir að hafa tekið sér góðan tíma til að velja sér viðeigandi búning.

Review