Gyða Valtýsdóttir tónskáld og sellóleikari heldur stórtónleika í tilefni af útgáfu fjórðu sólóbreiðskífu sinnar, OX í Gamla Bíó fimmtudaginn 7. júlí.

Líkt og á fyrri plötum sínum text Gyðu að skapa persónlegan hljóðheim sem brúar bil á milli tónlistastefna með einstökum hætti. Tónlist Gyðu snertir hlustandan á djúpstæðan hátt og hefur hún fengið einvala liði tónlistarfólks til að spila með sér en þau eru:

Indré Jurgeleviciute á þverflautu og litháíska hörpu, Úlfur Hansson á hljóðgervil og bassa, Bert Cools á gítar, John McCowen á klarinet og Magnús Trygvason Eliassen á trommur en öll koma þau við sögu á nýrri plötu Gyðu. 

Gyða hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2019 fyrir tónlistarflutning þar sem sköpunarkrafturinn brýst fram með afgerandi rödd, frumlegum hljóðfæraleik og miklum persónutöfrum

Tónlistarflutningur Gyðu er einstaklega áhrifaríkur viðburður og einstök upplifun að heyra víðfeðman og undurfagran hljóðheim hennar í frumlegum lagasmíðum hennar og útsetningum.

OX fékk verðlaun fyrir upptökustjórn ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum, en hinar þrjár sólóplötur Gyðu hafa allar verið verðlaunaðar sem plötur ársins í opnum flokki.

Litháenska hljómsveitin Meropé mun stíga á svið á undan Gyðu að hita upp salinn, en tónlist þeirra er líka töfrum líkust, en byggir á samslætti nýrra tóna í bland við ævaforna litháenska þjóðlagatónlist.

Gyða hefur komið víða við á tónlistarferlinum. Hún var einn af meðlimum hljómsveitarinnar múm og hefur auk þess iðkað klassíska tónlist frá barnsaldri. Hún lauk tveimur mastersgráðum í klassískum sellóleik og frjálsum spuna frá tónlistarskólanum í Basel, Sviss. Gyða hefur unnið með fjölmörgu listafólki, samið fyrir leikrit, dansverk, kvikmyndir og leikið inn á fjöldan allan af hljómplötum um allan heim.

OX fæst í Smekkleysu Plötubúð

Tónleikarnir hefjast klukkan 21 í Gamla Bíó, fimmtudaginn 7. júlí 2022, miðar fást hér

Review