Purrkur Pillnikk gefur út heildarsafn verka sinna sem ber heitið Orð fyrir dauða. Eldri plötur hafa verið re-masteraðar. Auk þess er í kassanum að finna áður óútgefið tónleika- og æfingaefni, og fyrstu hljóðversupptöku á Orðum fyrir dauða, síðustu fimm lögum Purrksins, sem samin voru fyrir lokatónleikana á Melavelli í ágúst 1982. Einnig nýjar útgáfur af fjórum af þekktustu lögum hljómsveitarinnar, sem hér kallast Afturgöngur 2023. Bóklingurinn er með ítarefni frá sögu hljómsveitarinnar, og textum frá fólki á ólíkum aldri, sem fylgst hefur með Purrkinum gegnum tíðina.  Allir textar hljómsveitarinnar eru hér að auki í fyrsta sinn prentaðir í heild.

Þessi útgáfa hefur að geyma fimm 180g vínilplötur og 48 síðna bókling í einum kassa.

Hljómsveitin Purrkur Pillnikk starfaði í um það bil eitt og hálft ár, frá mars 1981 til ágúst 1982. Fyrir lokatónleika Purrksins samdi hljómsveitin fimm ný lög, undir yfirskriftinni Orð fyrir dauða, og voru þessi lög aðeins flutt við það eina tækifæri, og reyndar aftur þremur árum síðar, þegar hljómsveitin kom saman á ný, á einum tónleikum, þá með trommuleikaranum Sigtryggi Baldurssyni.


Það er óhætt að segja að Purrkur Pillnikk hafi haft mikil áhrif í íslensku tónlistarlífi, bæði á meðan hljómsveitin starfaði, og ekki síður eftir það, allt fram á þennan dag. Snemma á þessu ári, 2023, ákváðu Einar Örn Benediktsson, Friðrik Erlingsson og Bragi Ólafsson – Ásgeir Bragason, trommuleikari, féll frá árið 2015 – að fara í hljóðver til að taka upp Orð fyrir dauða, því þeim fannst sem þeir hefðu aldrei gert þessum síðustu lögum almennileg skil. Sem fyrr var Sigtryggur Baldursson með í hópnum, sem meðlimur hljómsveitarinnar, og einnig Örlygur Steinar Arnalds, sem meðal annars hefur starfað í hljómsveitunum sideproject og Korter í flog

Purrkur Pillnikk lítur svo á að hinar nýju upptökur á Orðum fyrir dauða séu frumútgáfur þessara fimm laga, enda voru þau vart tilbúin í ágúst 1982, þá rétt nýsamin. Hugmyndin var að láta þau hljóma eins og þau væru samin „í gær“, enda hafa þau lifað í huga Purrksins í gegnum árin sem slík, og með aðkomu Örlygs Steinars og upptökustjórans Alberts Finnbogasonar telur hljómsveitin sig hafa gefið þessari tónlist algerlega nýtt líf, og í raun endurskapað hana. Upptökurnar voru gerðar í hljóðverinu Sundlaugin í maí 2023. Curver Thoroddsen sá um hljóðvinnslu. Ámundi Sigurðsson hannaði.

Forsala á Orðum fyrir dauða er hafin á www.smekkleysa.net og lýkur 1. desember 2023
Útgáfan kemur til landsins 1. desember 2023 og verður þá afhent í Smekkleysu Plötubúð.

Upptökusjóður STEFs styrkti þessa útgáfu.

VÍNILL #1
orð fyrir dauða • maí 2023
afturgöngur • maí 2023
tilf • 1981
no time to think • 1982

VÍNILL #2
ekki enn • 1981

VÍNILL #3
googooplex • 1982

VÍNILL #4
maskínan • 1983

VÍNILL #5
austurbæjarbíó • 1981
félagsstofnun stúdenta • 1985

PRENT
bóklingur: orð og myndir
1981 – 2023

Review