Fréttatilkynning.

Mikael Máni gefur út sína 3. plötu INNERMOST 18. nóvember á CD og merktum vínyl í takmörkuðu upplagi (001-100). 

INNERMOST er konsept-plata, hugleiðing um æskuna og áhrif tónlistar. Lögin eru samin um táningsár Mikaels, hlutina sem mótuðu hann og og gerðu þetta tímabil að mikilvægum stökkpalli út í fullorðinsárin. Í tónsmíðaferlinu og í útsetningum kafaði Mikael í tónlistina sem hann hlustaði mest á á þeim árum, oftast á löngum strætóferðum á leið í og úr skóla í strætó 3. Til þess að endurspegla það hélt bandið örtónleika í gömlum strætisvagni sem teknir voru upp á myndband, þar spiluðu þau tvö lög plötunnar, en annað þeira heitir “Bus Song” (Strætólagið). 

INNERMOST var tekin upp með kvintett Mikaels í júní 2022, Mikael er höfundur laga og sér um gítarleik, auk hans eru í bandinu Magnús Trygvason Eliassen á trommur, Henrik Linder á bassagítar, Lilja María Ásmundsdóttir á píanó og metalafón og Tómas Jónsson á hljómborð.Einnig kemur fram í þremur lögum á plötunni strengjakvartett skipaður Unu Sveinbjarnardóttur, Yasney Rojano Cruz, Guðrúnu Hrund Harðardóttir og Júlíu Mogensen.

Um upptökustjórn sá Hilmar Jensson, Albert Finnbogason var hljóðmaður og með-upptökustjóri og Hoffe Stanow sá um hljóðjöfnun.


Þar sem aðrir meðlimir bandsins verða í útlöndum útgáfudaginn 18. nóvember var ákveðið að gera sérstakan viðburð sem verður haldinn í SmekkleysubúðinniMikael mun leika lög af plötunni ásamt eldra efni í nýjum útsetningum með gítarleikaranum Hilmari Jenssyni sem sá um upptökustjórn á plötunni. Hilmar kenndi Mikael fyrir 10 árum síðan, þegar hann var í FÍH og var aðalgítar Mikaels í mörg ár gamall gítar Hilmars. Mikael ákvað að biðja Hilmar að stjórna upptökum á plötunni eftir að hann dreymdi draum þar sem hann og Hilmar voru saman við upptökur í stúdíói. Eftir að hann vaknaði fannst honum þetta vera áhugaverður draumur þar sem hann vissi að Hilmar hefði aldrei séð um upptökustjórn nema á plötum sem hann spilaði líka sjálfur inn á. Það varð úr að Mikael talaði við Hilmar sem var til í slaginn.  

Útgáfutónleikar verða síðan haldnir með hljómsveit Mikaels sem spilaði inn plötuna, sunnudaginn 7. janúar, kl. 17:00 í Hannesarholti.

Mikael Máni gaf út sína fyrstu breiðskífu Bobby 2018, konsept-plötu um líf umdeilda skákmeistarans Bobby Fischer, þar sem Skúli Sverrisson og Magnús Trygvason Eliassen leika með honum. Platan fékk mikla athygli innanlands og í útlöndum og lögum plötunnar hefur verið streymt meira en 1.300.000 sinnum. Önnur plata hans, Nostalgia Machine þróaði hljóðheim hans enn frekar,  en hún var tekin upp með einum virtasta pródúsent í jazz í dag, Matt Pierson, sem hefur unnið með Pat Metheny, Brad Mehldau og vinnur nú með Samara Joy. Platan fékk viðurkenningu frá Cerys Matthews, var valin jazz plata ársins hjá Morgunblaðinu og var tilnefnd til Kraumsverðlaunanna.

Review