Gítarleikarinn og tónskáldið Mikael Máni mun leika sóló gítar prógram í Mengi þann 7. Jan. Hann hljóðritaði nýverið efnisskrána með níu frumsömdum lögum í Amsterdam þar sem hann er búsettur og vildi nota tækifærið á meðan hann er á Íslandi til að spila það fyrir landa sína.

Stíll laganna er blanda af folk, jazz, blús – og þrátt fyrir að öll lögin séu án söngs er sterk tenging við singer-songwriter tónlist. Mikael mun einnig leika nokkur af sínum uppáhalds lögum og má hugsanlega heyra lög eftir Joni Mitchell, Bob Dylan og Megas.

Mikael Máni gaf út sína fyrstu breiðskífu Bobby 2018 þar sem Skúli Sverrisson og Magnús Elíassen leika með honum. (“Concept” plötu um líf umdeilda skák meistarans Bobby Fischer). Platan fékk spilun á BBC 3 & 6 og hefur lögum plötunar verið stremyt meira en 1.000.000 sinnum. Önnu plata hans Nostalgia Machine kafaði dýpra í tónlistarlegt tungumál Mikaels. Platan fékk viðurkenningu frá Cerys Matthews, var valin jazz plata ársins hjá Morgunblaðinu og var tilnefnd til Kraumsverðlaunanna.

Mikael Máni

Review