Drýpur er fyrsta plata Bergþóru Kristbergsdóttur.
Hún á nokkuð óvenjulegan feril að baki í tónlistinni en eftir að hafa tekið sér áratugar langt hlé frá klarínettleik sneri hún aftur í hann 25 ára gömul.
Útskrifaðist svo með BA-gráðu í nýmiðlatónsmíðum frá Listaháskóla Íslands 2023.
Nálgun hennar við tónsmíðar er brennd marki yngri kynslóða, farið er yfir mörk og mæri kinnroðalaust og nútímatónlist, rafi og tilraunasprettum blandað saman eins og ekkert sé.




Reviews
There are no reviews yet.