symfaux – mowerpic

5490 kr

Höfundar allra laga eru Sturla Sigurðarson, Vigfús Þór Eiríksson og Ægir Sindri
Bjarnason.

Reykjavík Record Shop kynnir með stolti plötuna mowerpic með hinni mögnuðu
hljómsveit symfaux (borið fram simfó).

symfaux er sérvitringagítarrokksveit sem samanstendur af Ægi Sindra Bjarnasyni
(trommur), Vigfúsi Þór Eiríkssyni (gítar) og Sturla Sigurðarsyni (gítar).

Þeir hafa allir leikið í fjölda ólíkra hljómsveita í sitthvoru lagi en komu saman haustið 2024, sameinaðir
í áhuga sínum á öfgakenndri dýnamík og óhefðbundnum gítarstillingum og
lagastrúktúrum. Þeir léku sína fyrstu tónleika á off-venue í 12 Tónum á Iceland Airwaves
2024 og þann sama dag gáfu þeir út sína fyrstu plötu, carmonk (sem var tekin upp
nokkrum dögum fyrr). Þeir hafa verið afar iðnir við kolann síðan og leikið á töluverðum
fjölda tónleika og hátíða.

Önnur plata þeirra, mowerpic, var tekin upp í Sundlauginni miðvikudaginn 23. apríl 2025
og kemur út á glæsilegri 180g vínylplötu á vegum Reykjavík Record Shop (og á
Bandcamp) föstudaginn 7. nóvember 2025. Platan hefur að geyma níu lög, fimmtíu
mínútur og er full af einstakri ástríðu fyrir óhemju, óhljóðum, óreiðu, ómstríðu, ómþýðu,
angurværð, mildi, spennu, losun. Í stuttu máli gott rokk.

Þess má geta að mowerpic er pressu á hnausþykkan 180 gramma vínyl

In stock

SKU: RRS-075 Categories: , , , Tag:
symfaux - mowerpic
symfaux – mowerpic

In stock