Sannarlega ánægjuleg lesning. Ekki hægt að óska sér skemmtilegri bók. Lestrarnautn.
Mjög skemmtilegt aflestrar. Tekur okkur í skemmtilegt ferðalag.
Bragi er einhver fyndnasti höfundur íslenskra bókmennta, og þar af leiðandi einn sá besti. Það er alltaf eitthvað óvænt í bókunum hans, eitthvað fáránlegt og eftirminnilegt … (Dagur Hjartarson, Mbl. 29. nóv. 2024)
Fáir eru leiknari í að búa til fjarveru í skáldverkum en Bragi, dularfullar eyður sem maður getur endalaust brotið heilann um. Ég mæli heilshugar með þessari bók.
Í textanum drynur stöðugur bassi sem vísar til söguloka … Hann er furðulega stingandi sá verufræðilegi skjálfti sem grípur mann þegar uppgötvast að Bragi vill veita okkur hlutdeild í tilverukjarna sínum.
Mæli eindregið með henni: skemmtileg, fróðleg, djúp og já, eiginlega svolítið dulræn. Galdur í henni.
Maður bara hlær og flissar og skellir upp úr allan tímann. Alveg stórkostlega skemmtileg frásögn.
(Árni Matthíasson, Kiljan)
Í þessari bók sýnir Bragi Ólafsson á sér nýja hlið sem höfundur, og beinir athyglinni að því sem ekki telst endilega vera skáldskapur.
Bókin er árituð af höfundi ef keypt hér hjá okkur í vefverslun og verslun.
Faðir höfundar vaknar eina nótt við að ókunnugur maður stendur í svefnherbergisdyrunum á heimili hans við Skólavörðustíg. Aldarfjórðungi síðar rifjar sonurinn upp þessa reynslu föðurins, og styðst við heimildir sem óvænt tengdust atvikinu. Samhliða því fer hann á stefnulaust flakk um fortíð og nútíð, frá miðbæ Reykjavíkur upp á Mýrar og út í heim, með viðkomu í hugarheimi annarra höfunda. Fjöldi ljósmynda prýðir bókina.
Bragi Ólafsson er fæddur í Reykjavík árið 1962. Á tæpum fjórum áratugum hefur hann sent frá sér hátt í þrjátíu bækur, jafnt ljóð, smásögur og skáldsögur, og einnig fengist við leikritaskrif og þýðingar.
Um árabil starfaði hann sem tónlistarmaður, meðal annars með hljómsveitunum Purrkur Pillnikk og Sykurmolarnir, og hefur frá árinu 1986 verið félagi í útgáfufyrirtækinu Smekkleysu, sem hefur haft víðtæk og djúp áhrif í menningarlífi landsins.
Meðal skáldsagna Braga eru Gæludýrin, Sendiherrann, Staða pundsins og Gegn gangi leiksins. Leikrit hans, Belgíska Kongó og Hænuungarnir, nutu fádæma vinsælda á fjölum Borgarleikhúss og Þjóðleikhússins.
Reviews
There are no reviews yet.