Tilraunaglöð neðanjarðarhlið Corpo di Strumenti er SÜSSER TROST: girnisstrengja-indípopphljómsveit sem dreymir um rokk. Bitastæðar eru útsetningar Mathurins Matharel á lögum Velvet Underground, Jacques Brel, Noir Désir, Nine inch nails, Cornelis Vreeswijk… sem og frumsamin lög og ljóð Steinunnar Arnbjargar Stefánsdóttur.
Langþráð fyrsta plata SÜSSER TROSTS hefur litið dagsins ljós með geisladisksaugum sínum. Frumsamið efni, ljóð og lög eftir Steinu. Hjartastyrkjandi, eins og nafnið gefur til kynna. Njótið hlustunarinnar, ef þið hafið gripinn í nánast sögulegum geislaspilurum ykkar. Sé svo ekki má vitaskuld kaupa hann í búð eða skrifa okkur til að panta hann, en einnig höfum við, ykkur til hughreystingar, sett lagið “Á hverjum degi” inn á hér verandi heimasíðu. Hlýjar kveðjur frá SÜSSER TROST.
Reviews
There are no reviews yet.