Bergrún Snæbjörnsdóttir gefur út sína fyrstu LP-plötu,
‘
Skinweeper
Reykjavík — 23. janúar 2026 — Skinweeper er ný breiðskífa eftir Bergrúnu
Snæbjörnsdóttur, sem kemur út 17. janúar 2026 á vegum Smekkleysu, aðgengileg bæði
stafrænt og á vínýl. Tónlistin á plötunni sameinar tónsmíðar og leiddan spuna í eina heild,
kemur úr ranni tilraunatónlistar og tileinkar sér víðtæka eiginleika hljóðfæra.
Skinweeper inniheldur þrjú verk sem samin voru yfir sjö ára tímabil. Kveikjan að verkunum
voru abstrakt hugleiðingar er varða umbreytingu orku úr einu formi í önnur – saman mynda
verkin þrjú heildstæða frásögn. Flytjendur eru William Winant, Kevin Corcoran og Matthias
Engler á slagverk, Theresa Wong og Marrissa Deitz á selló, Kyle Bruckmann á enskt horn,
John McCowen á klarínettur, Gunnhildur Einarsdóttir á hörpu, en unnið var sérstaklega náið
með hljóðfæraleikurunum til að draga fram persónulegt samband þeirra við hljóðfæri sín inn í
tónsmíðarnar.
Stutt ágrip:
Tónlist Bergrúnar Snæbjörnsdóttur hefur vakið sívaxandi athygli á undanförnum árum en á
meðal tónlistarhópa sem hafa flutt verk hennar má nefna sveitir svo sem Fílharmóníusveitina
í Osló, Ensemble Musikfabrik (DE) og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Bergrún nam tónsmíðar
við Listaháskóla Íslands og síðar við Mills College í Kaliforníu þar sem hún naut leiðsagnar
brautryðjenda á sviði framsækinnar tilraunatónlistar; má þar nefna Pauline Oliveros, Fred
Frith og Zeena Parkins.
Bergrún vinnur á spennandi mærum ólíkra listgreina, tónlist hennar oft samofin myndlist og
innsetningum en kveikjur og áhrif eru gjarnan sótt í heimspeki og náttúrufyrirbæri. Í verkum
hennar er hinn sjónræni þáttur iðulega virkjaður og hlutverk tónlistarflytjandans opið og
spunakennt þar sem Bergrún nýtir sér óhefðbundna nótnaskrift. Á meðal nýlegra verka má
nefna Agape, sem var frumflutt á myndlistarhátíðinni Sequences árið 2021; Ecognosis,
pantað af International Contemporary Ensemble (US) árið 2021 og Roföldur með John
McCowen, pantað af INA GRM og flutt í Radio France 2025. Verkefni framundan eru meðal
annars verk í tónleikalengd fyrir Apparat Ensemble (DE) á Myrkum Músíkdögum, verk fyrir
Yarn/Wire (US), og verk í tónleikalengd fyrir viibra flautuseptett ásamt Margréti
Bjarnadóttur danshöfundi fyrir Listahátíð í Reykjavík.
Platan kemur út stafrænt á morgun, föstdaginn 23. Janúar. Vínyl-útgáfa kemur 1.
mars.
www.smekkleysa.net
www.bergrun.com



Reviews
There are no reviews yet.