2 Discs
Komin eru út á geisladiskum endurútgefin einsöngslög Sigvalda Kaldalóns tónskálds og læknis, sem verið hafa ófáanleg til fjölda ára.
Endurútgáfan er í tveim hlutum. Sá fyrri nefnist Svanasöngur á heiði en sá síðari Ég lít í anda liðna tíð, samtals 102 sönglög úr smiðju Kaldalóns á fjórum geisladiskum, flutt af tólf af fremstu einsöngvurum þjóðarinnar.
Upptökur fóru fram í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, á árunum 2003 og 2005. Listrænn stjórnandi var Jónas Ingimundarson, en hann annaðist jafnframt píanóleik við allar hljóðritanir, sem voru í umsjá Halldórs Víkingssonar, Fermata hljóðritun.
Halldór hafði einnig umsjón með núverandi útgáfu og endurvann upptökurnar með nýjustu tækni. Reynir Axelsson yfirfór ljóðatexta og enskar þýðingar. Ingvar Víkingsson sá um grafíska hönnun.
Sigvaldi Kaldalóns sótti sér efnivið til lagasmíða úr sígildum sjóði fjölmargra ljóðahöfunda og tókst afar vel að túlka innihald og anda ljóðanna, færa þau í tónrænan búning með skáldlegri andagift og hljóðfæri sitt að vopni. Útgefandi er Minningarsjóður Sigvalda Kaldalóns.
Reviews
There are no reviews yet.