GDRN & Magnús Jóhann – Nokkur jólaleg lög

5499 kr

Söngkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN og píanóleikarinn Magnús Jóhann Ragnarsson eru kunnug flestum landsmönnum eftir að hafa komið víða við í sinni tónlistarsköpun undanfarin ár. Hljómplata þeirra, Tíu íslensk sönglög, sló rækilega í gegn við útgáfu hennar árið 2022 og nú hafa þau slegið höndum saman á ný og hljóðritað splunkunýja hljómplötu með jólalögum. Nokkur jólaleg lög kemur út 22. nóvember og inniheldur lög á borð við Yfir fannhvíta jörð, Komdu um jólin, Heim til þín og fleiri perlur. Auk þess að innihalda fyrsta söngdúett GDRN og Bríetar inniheldur platan frumsamið lag eftir GDRN og Magnús sem KK flytur með þeim.

GDRN & Magnús Jóhann – Nokkur jólaleg lög
5499 kr Select options